Setti myndir inn!Samúel Sigurðsson
Setti inn myndir af busaballinu og frá sumarbústaðinum hans Ella...Við þröngan kost ber námsmanni að búaSamúel Sigurðsson
Nýlokinn við kvöldverð; Tók tvo kjúklingavængi og flétti þær "öllu" kjöti dýfði ofaní mjólk og setti í poka með McGormick seasoning hristi og steikti á pönnu í korter. Dýfði í remúlaði og borðaði nýútrunnið dósaanananas með.. eitt jákvætt við þessa máltíð, ég þarf aldrei að borða hana afturKominn með MyspaceSamúel Sigurðsson
Plöggaði mér myspacei.. það er www.myspace.com/sammisig endilega addið ykkur :)Útskriftarönn að hefjast, hvað svo?Samúel Sigurðsson
Jæja, sumarið búið og skólinn að byrja.. Mætti í dag og sótti nokkrar kennsluáætlanir og svona. Ætlum bara sitja á sama borði og á síðustu önn, en sýnist að einhverjir óprútnir aðilar hafa reynt að hösla sér svona eins og annan helminginn af borðinu okkar
Annars er ég bara búinn að eiga fínt sumar, búinn að vera vinna nánast hvern dag á Makkanum fyrir utan 9 daga frí sem ég fékk í júlí og einstaka daga milli vakta. Fór nú reyndar til Vestmanneyja yfir Versló og það var sjúkt.! Held það sé alltof seint að blogga ferðasögu en flestir hafa hvortsem ábyggilega heyrt hana frá mér eða öðrum :)
24 einingar, útskrift og hvað svo? Ætli maður verði nú ekki að vinna eins og hundur í 12-18 mánuði áður en maður hyggur að Háskóla.. Ætla samt áður en ég fer í háskóla að ferðast aðeins; sjá Afríku, Ameríku og Asíu. Hugsanlega vinna í 3-6 mánuði á Nýja Sjálandi og reyna þá að fá að krassa hjá mömmuætt sem býr það öll.
Þannig t.d. ferðast 1 mánuð í afríku, annan í asíu, koma við á Nýja Sjálandi í 3-6 mánuðið og svo kíkja á S og N ameríku í svona 1-2 mánuði.. sjúkt ferðalag.. þá verð ég vonandi búinn að ákveða mig hvort ég vilji verða Efna- eða Efnahagsfræðingur.. Spurning bara með hvort einhver vilji vera memm í þessari ferð? Myndi sennilega fara í hana lok 2008 eða 2009. Einhverjir hafa nú verið að tala um að vilja fara í einhverja ferð, þó kannski ekki svona langa..
Í vetur verð ég bara áfram að vakstjórast eitthvað á makkanum með skólanum, vinn ábyggilega 80-90 tíma á mán eins og síðustu önn, :/.. þannig það verður allveg nóg að gera hjá mér, en ég er samt alveg með frekar auðvelda töflu: 6 ein í sögu, 6 í efn, 3 í þjó, 3 í Jar, 3 í þýs auk enskuyndislestri og útskriftarlífleikninni :)
En allavega loksins kom blogg.. ætla vona bloggkerfið beili ekki á blogginu mínu eins og það gerði síðast þegar ég ætlaði að blogga!
P.S ég keypti mér nýjan síma í dag 5000 kall! var víst einhver galli í skjá og honum var skilað eftir litla notkun, þeir skiptu um skjá en gátu ekki selt hann á fullu verði, kom bara ber án hleðslutækis, handfrjálsum og svona shitti sem ég á hvortsem er! :) Nokia 6103, sést ekki á honum
Próf og annar viðbjóðurSamúel Sigurðsson
HÆ!Nú er sumarfríið alveg að detta inn og ég er að drepast úr spenningi!
Sé fyrir að ég eigi loksins eftir að eiga einhvern frítíma til að gera alls ekki neitt! :D Búiinn að vera í skóla + 90-110 tíma vinnu allan vetur og nú verður full vinna bara eitthvað djók miðað við það :)
Ýmislegt að gerast t.d. var eurovision í gær og ég bauð nokkrum í smá teiti og við horfðum á. Reyndar breyttist þetta í smá kosningarvöku þar sem strákarnir voru ekki í drykkjarstuði en stelpurnar fóru í annað partý. Einhver lessa með 4 gellum að koma við sig vann og ég fatta ekki alveg hvað málið með það var.. Jájá stelpan söng vel en HALLÓ! er ekki Eurovision bara the show? Hefði viljað sjá Úkraníu vinna þetta.. Amman úr trillunum + teletubbies = Fucked up shit.. en samt sem áður.
Tvö próf eftir hjá mér Eðl203 og Stæ313. Held mér hafi bara gengið mjög vel í prófunum mínum hingað til og þá sérstaklega vel í Efn203 sem var á föstudaginn þar sem ég rúllaði þessu frekar létta prófi upp ;) Síðan er ég búinn að fara í þýs303 og stæ603 próf í síðustu viku(m).
Ríkistjórnin hélt sem betur fer, en ég held að þeir haldi samt ekki stjórnarsamtarfi áfram óbreyttu.. Veit lítið um xF mál þannig ég veit ekki hvernig þeir myndu koma inní samsteypustjórn með D og B. Ég er reyndar spennastur fyrir D+S held það gæti orðið hella -öflug stjórn með 60-65% atkvæða bakvið sig.
Svo er hérna próf sem ég lofaði víst Heiðu að setja á síðuna mína þannig hér er það!
Alls ekki vera hrædd að taka þetta þó þið þekkið mig kannski ekki alveg geðveikt vel :)
1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?Veslingar eru pabbastelpurSamúel Sigurðsson
Allt að verða brjálað í skólanum útaf nemendafélagskosningunum, skólinn er ógeðslegur. Ósnyrtilegar kosningarherferðir eru á öllum veggjum og ýmsir misvitlausir eru í mörgum framboðum. Það er allt að birta yfir gjafmildi frambjóðenda en samt eru þeir langt frá því að missa sig jafn mikið og Veslingarnir hinum megin við Kringluna. Búinn að fara þarna í tveim hádegishléum og sníkja rich daddy food eins og þetta er þekkt sem í MH.. Þar er greinilegt að þú færð ekki atkvæði nema þú splæsir KFC, Sbarro eða einhverju á allt liðið.. Ég fór allavega fullfermdur af kók zero og nammi í gær. Svo var Geir Ólafs eitthvað að reyna syngja þarna og það er alveg ótrúlegt hvað þessi maður er fljótur að hreinsa gólfið af fólki.. Þarf bara byrja syngja og fólk fer annað hvort á bókasafnið eða fyrirfara sér. Helmingurinn af fólkinu þarna var samt MHingar bara komnir til að sníkja frá pabbastelpunum í framboðum Versló. Gaman af þessu.Xoforce gáfu Nings í dag og voru held ég fyrstir til að gefa heitan mann í MH og þar eru Kristján og Símon klárlega ða gera góða hluti.. Allir hinir gefa bara bakarísmat og nammi.. og í staðinn fær maður óendalega mikið af bæklingaspammi.. sumir fyndnir, sumir reyna vera fyndinir og svo eru nokkrir sem eru bara ÉG VILL breyta, sem auðvitað enginn nennir að lesa
Margir eru með svona stuðningsaðila, eitt mjög misheppnað grín var þegar eitt framboðið var með Jack Bauer sem stuðningsaðila, og commentið hans um ráðið var.. " I need to talk to the President" ég missti víst af gríninu í þessu.
En já ég bloggaði og ég heimta klapp á bakið! ;)
Morfís meistarar!Samúel Sigurðsson
Já í gær varð MH morfís meistarar og fóru létt með það! :) Fór í háskólabíó í gær og sá okkur velta yfir borgó sem voru á móti því að taka upp alheimstungumál en við vorum með því. Birkir Blær var ræðumaður íslands, helvíti gott hjá stráknum.Svo unnum við líka ME í gettu betur í gærkvöldi svo það er ALLT að gerast held við tökum á móti MK í næstu umferð og það verður gamana að sjá hann það
Ekki dauðurSamúel Sigurðsson
Þvert á móti er ég enn lifandi!Netið komið aftur!Samúel Sigurðsson
Og kjáninn ég hefð´átt að vera kominn með það fyrir tveimur vikum!.. en ég þurfti bara fara inná routerinn og segja honum að connecta sig við netið..En annars er MH árshátíðin á eftir og líklegt það verði brjálað stuð! Fer út að borða á Hornið með Helgu og nokkrum krökkum úr skólanum og svo fyrirpartý og svo Broadway!
Annars er lítið búið að vera gerast hjá mér nýlega.. vann 8 daga í röð þannig ég var í skólanum til hálf fjögur, vinnu frá 4 til 8-9-10 og svo heim að sofa fljótlega.. JEI!
En það er samt fínn peningur sem fæst fyrir þrælavinnuna mína þannig ég tek aukavaktir ef ég þarf.
Núna eru Lagningardagar í skólanum og ég er ekki alveg viss á þessu dóti en ég held ég eigi að mæta á svona "events" í skólanum og skrá það niður á eitthvað sérstakt blað og skila inn, og þá fæ ég ekki skróp fyrir þessa þrjá daga sem lagningardagar eru.. en það er hvortsem ekkert kennt, þannig ég gæti ekki mætt þó að ég vildi.. right?
Soldið skrýtið en betra en að læra.. allt betra en að læra :D.
Mamma og pabbi og tvö yngstu komu um síðustu helgi og voru hress á því, bjuggu hérna hjá mér og Önnu og fylltu skápa heimilisins af ýmsu góðgæti =)
Á leiðinni út í dag sá ég dagblöðin sem ég fæ frítt á morgnanna.. á öllum þeirra voru feministar eitthvað að rífa sig:
Kona ein sem var í kjöri í formannskosningum KSÍ sem var ekki kosinn, var að væla yfir því hvað fáar konur væru í þessu og hinu.. hún var ekki kosinn aðþví hún var kona heldur að hún var klárlega veikari kosturinn.. Og ástæðan fyrir því að fáar konur eru í stjórn KSÍ er einfaldlega það að miklu fleiri karlmenn hafa miklu meiri áhuga heldur en kvennmenn á fótbolta.. það er ekki karlremba heldur staðreynd.
Svo sá ég í Blaðinu að feministar í Svíþjóð vildu taka mynd af Kalla kóng af seðlunum og myntunum þeirra, vildu frekar setja einhverjar konur aðþví það var svo ósanngjarnt að það væru bara kallar á seðlunum og myntunum..
.. Hverjum er ekki sama þótt það séu bara kallar á þessum peningum, þetta hefð í landi að þjóðhöðinginn sé á peningum landsins.. Ekki það að ég hafi eitthvað á móti því að setja Astrid Lindgren á sænsku peningana, bara það hvað sumir feministar eru orðnir frekir og vilja þetta og vilja hitt.





